26.4.2007 | 23:29
Styttist í heimferð
Núna eins og Frúin kom á framfæri þá styttist óðum í að við komum heim. Við öll getum ekki beðið eftir að hitta alla og njóta tímans á Íslandi. það verður frekar furðulegt að koma heim í svona nokkurs konar sumarfrí, ekki vera að fara erlendis í sólina. Dagskráin okkar verður eflaust þéttskipuð því það er margt sem við ætlum að gera, hitta alla og borða góðan íslenskan mat. Til að koma því strax að þá hlökkum ógeðslega mikið til að hitta þig Elsa Hrönn!!!!! Við munum koma heim föstudaginn 26. mai og ég verð á landinu til 6, júní en frúin og börnin fara aftur til New York 21. júní. Ég þarf að byrja að vinna þann 7. júní.
Annars er sumarið nokkurn vegið komið hérna, það var 25-30 stiga hiti í byrjun vikunar en núna er veðrið ekki eins gott. Við nutum daganna til fulls á meðan sólin var, við fórum út með drengina í tvo tíma á dag og skemmtum við okkur öll vel. Við fengum meiri segja smá lit í andlitið, sem er ekki slæmt því maður var orðinn frekar grár og gugginn. En samt helst fegurðin alltaf, bara mismikið
Svo styttist nú í prófin hjá mér, hlakka mikið til að klára önnina og komast í frí. Það skemmir ekki að daginn sem ég klára þá koma Guðrún Birna og Thijs til okkar í heimsókn. Það er á stefnuskránni að gera eitthvað mjög skemmtilegt með þeim. Ég og Thijs vorum að spá í að reyna að fara á leik. Ég fór á Ticketmaster til að finna miða á einhvern góðan leik. Það sem kom út úr þessu var að körfuboltinn hjá Knicks er búinn þar sem þeir komust ekki í úrslitakeppnina, þannig að næst var athugað með Ameríska fótboltann, en hann verður ekki byrjaður, eða ég sá alla vega ekki miða á neinn leik. Því næst var það hafnaboltinn, en enginn leikur er á meðan þau verða hjá okkur. Þannig að niðurstaðan er sú að ég fann miða á leik New York Red Bulls og Colombus Crew í knattspyrnu. Það er samt spurning hvort að það sé mikið spennandi að kíkja á þennan leik, kannski alveg eins og að fara á leik í íslenska boltanum sem ekki mjög gaman að mínu mati. En það er aldrei að vita hvað gerist. Ef allt þetta klikkar þá gerum við bara eitthvað skemmtilegt í hverfinu okkar og skellum okkur einhverja daga til Hattan eða þá bara drekkum nokkra bjóra/kokteila/léttvín og borðum góðan mat.
Læt þetta nægja í bili.
Arnar Freyr
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.